Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1420/2022

Nr. 1420/2022 15. desember 2022

REGLUGERÐ
um desemberuppbætur til maka- og umönnunarbótaþega árið 2022.

1. gr.

Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um desemberuppbætur til þeirra sem fá greiddar maka- eða umönn­unar­bætur á árinu 2022.

Tryggingastofnun ríkisins annast framkvæmd reglugerðarinnar.

 

2. gr.

Desemberuppbót.

Einstaklingur sem hefur fengið greiddar maka- eða umönnunarbætur skv. 5. gr. laga um félags­lega aðstoð, nr. 99/2007, á árinu 2022 skal fá greidda desemberuppbót að fjárhæð 54.674 kr. enda hafi greiðsluþegi fengið mánaðarlegar greiðslur allt árið 2022.

Greiðsluþegi sem hefur fengið greiddar maka- eða umönnunarbætur skemur en tólf mánuði á árinu 2022 á rétt á hlutfallslegri desemberuppbót skv. 1. mgr. í samræmi við þann tíma sem hann hefur fengið greiðslur á árinu. Miða skal við 1/12 fyrir hvern mánuð.

 

3. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 70. gr., sbr. 69. gr., laga nr. 100/2007, um almanna­tryggingar, með síðari breytingum, og 2. mgr. 14. gr. laga nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi. Frá sama tíma falla úr gildi reglugerðir nr. 1260/2020, um desemberuppbætur til maka- og umönnunarbótaþega árið 2020 og nr. 1408/2021, um desember­uppbætur til maka- og umönnunarbótaþega árið 2021.

 

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu, 15. desember 2022.

 

Guðmundur Ingi Guðbrandsson.

Jóna Guðný Eyjólfsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 19. desember 2022