Breyting á aðalskipulagi Húnaþings vestra 2014-2026

Breyting á aðalskipulagi Húnaþings vestra 2014-2026

Sveitarstjórn Húnaþings vestra samþykkti á fundi sínum þann 9. mars 2023 að auglýsa breytingu á aðalskipulagi 2014-2026 skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Um er að ræða breytingu á aðalskipulagi Húnaþings vestra 2014-2026 þar sem breytt landnotkun, stækka reiti eða endurskilgreina landnotkun á nokkrum stöðum innan Hvammstanga.

Annars vegar er um ræða breytingu á íbúðarbyggð ÍB 9 við Lindarveg og hins vegar breytingar á íbúðarbyggð Í7 sunnan við Eyri og tilfærsla á landnotkunarreit AT3. Enn fremur skilgreining á svæði fyrir verslun og þjónustu við Lindarveg. Íbúðarsvæðið við Lindarveg er í uppbyggingu og eru þar risin nokkur íbúðarhús.

Svæðið er skv. núgildandi skipulagi skilgreint sem svæði fyrir frístundabyggð en með þessari breytingu er verið að fella þá skilgreiningu niður. Svæðið sunnan og norðan við Eyri þar sem breytingin nær til, er að mestu tún og beitarlönd og byggt hefur verið á öllum fjórum lóðunum á svæði ÍB7.

Deiliskipulagsbreytingar eru unnar samhliða aðalskipulagi og er tillögurnar auglýstar samtímis.

Föstudaginn 12. maí 2023 frá kl. 10:00-12:00 gefst fólki kostur á að koma og kynna sér umræddar breytingar í Ráðhúsi Húnaþings vestra Hvammstangabraut 5.

Breytingu á aðalskipulagi Húnaþings vestra 2014-2026 má nálgast hér á heimasíðu sveitarfélagsins hunathing.is

Uppdráttur að aðalskipulagi Húnaþings vestra 2014-2026

Frestur til að skila inn athugasemdum eða ábendingum rennur út 16. júní 2023, og skal þeim skilað á netfangið skipulagsfulltrui@hunathing.is eða með bréfapósti stílað á skipulagsfulltrúa Hvammstangabraut 5, 530 Hvammstanga.

 

Breyting á deiliskipulagi - Búland vestan Höfðabrautar

Sveitarstjórn Húnaþings vestra samþykkti á fundi sínum þann 9. mars 2023 að auglýsa breytingar á deiliskipulagi, skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Breyting á deiliskipulagi snýr að Eyrarlandi 2-6 sem eru athafnalóðir og verður breytt í íbúðarlóðir. Heimilt verður innan hverrar lóðar að reisa 1-2 hæða einbýlishús, auk vinnustofu, gestahús.

Lóð Höfðabrautar 36 verður minnkuð til þess að koma fyrir gangstétt. Einnig er stækkun lóðar Höfðabrautar 37 til samræmis við aðrar aðliggjandi lóðir.

Kvöð er um gróður til þess að minnka ásýnd á athafnalóðir og að halda svæðinu snyrtilegu.

Föstudaginn 12. maí 2023 frá kl. 10:00-12:00 gefst fólki kostur á að koma og kynna sér umræddar breytingar í Ráðhúsi Húnaþings vestra Hvammstangabraut 5.

Breytingu á deiliskipulagi við Búland má nálgast á heimasíðu sveitarfélagsins hunathing.is

Frestur til að skila inn athugasemdum eða ábendingum rennur út 16. júní 2023 og skal þeim skilað á netfangið skipulagsfulltrui@hunathing.is eða með bréfapósti stílað á skipulagsfulltrúa Hvammstangabraut 5, 530 Hvammstanga.

 

Breyting á deiliskipulagi austan Norðurbrautar

Sveitarstjórn Húnaþings vestra samþykkti á fundi sínum þann 9. mars 2023 að auglýsa breytingar á deiliskipulagi, skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Markmiðið með breytingunni er að auðvelda byggingu á þessum lóðum og nýta lóðirnar betur þar sem um nokkurn hæðarmun er að ræða og fella húsin betur að landi. Breyttir skilmálar eru á fjórum lóðum fyrir frístundahús ásamt nokkrum lagfæringum á byggingarreitum.

Áhrif breytingarinnar eru óveruleg. Breytingin hefur jákvæð áhrif á frágang við lóðir þar sem þetta einfaldar frágang vegna hæðarmunar. Breytingin nær yfir lóðir sem eru óbyggðar og hverfið er fyrir ofan núverandi byggð og hefur því óveruleg sjónræn áhrif fyrir aðra íbúa.

Föstudaginn 12. maí 2023 frá kl. 10:00-12:00 gefst fólki kostur á að koma og kynna sér umræddar breytingar í Ráðhúsi Húnaþings vestra Hvammstangabraut 5.

Breyting á deiliskipulagi austan Norðurbrautar má nálgast á heimasíðu sveitarfélagsins hunathing.is

Frestur til að skila inn athugasemdum eða ábendingum rennur út 16. júní 2023 og skal þeim skilað á netfangið skipulagsfulltrui@hunathing.is eða með bréfapósti stílað á skipulagsfulltrúa Hvammstangabraut 5, 530 Hvammstanga.

 

Deiliskipulagstillaga í landi Ósa við Hvítserk

Sveitarstjórn Húnaþings vestra samþykkti á fundi sínum þann 13. apríl 2023 að auglýsa deiliskipulagstillögu skv.1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Markmið deiliskipulagstillögunnar er að kortleggja núverandi stöðu og ákvarða staðsetningu göngustíga, salerna og áningarstaða. Lögð verður áhersla á að umhverfisgæði svæðisins nýtist til útivistar og að fullt tillit verði tekið til ósnortinnar náttúru.

Önnur markmið eru að:

  • standa vörð um merkar náttúru- og söguminjar,
  • kortleggja og skilgreina gönguleiðakerfi,
  • stuðla að betra aðgengi almennings og eflingu ferðaþjónustu.

Föstudaginn 12. maí 2023 frá kl. 10:00-12:00 gefst fólki kostur á að koma og kynna sér deiliskipulagstillögu í Ráðhúsi Húnaþings vestra Hvammstangabraut 5.

Deiliskipulagstillögu í landi Ósa má nálgast á heimasíðu sveitarfélagsins hunathing.is

Frestur til að skila inn athugasemdum eða ábendingum rennur út 16. júní 2023 og skal þeim skilað á netfangið skipulagsfulltrui@hunathing.is eða með bréfapósti stílað á skipulagsfulltrúa Hvammstangabraut 5, 530 Hvammstanga.

___________________________

Bogi Kristinsson Magnusen

Skipulagsfulltrúi Húnaþings vestra,

Húnabyggðar og Skagabyggðar.

Var efnið á síðunni hjálplegt?