Uppland Garðabæjar, Urriðavatnsdalir, Urriðakotshraun, Heiðmörk og Vífilsstaðahraun
9.2.2023
Tillögur að skipulagsáætlunum og breytingum á eldri áætlunum á aðalskipulags- og deiliskipulagsstigi.
Tillögur
að skipulagsáætlunum og breytingum á eldri áætlunum á aðalskipulags- og
deiliskipulagsstigi.
Á fundi bæjarstjórnar Garðabæjar þann 4. desember
2022 var samþykkt að vísa til auglýsingar samkvæmt 31. gr. og 41. gr. og 1. mgr.
43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010
eftirfarandi tillögum:
Tillaga
að breytingu á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 vegna stígakerfis í
upplandi Garðabæjar og vegna Flóttamannavegar.
Aðalskipulagsbreytingin felst í endurskoðun á reiðleiðum og stígum í
upplandi Garðabæjar og skilgreiningu Flóttamannavegar frá Urriðaholti að
Vífilsstöðum til samræmis við deiliskipulagstillögur og
friðlýsingartillögu sem auglýstar eru samhliða.
Markmið
tillögunnar er að laga stígakerfið að eftirfarandi tillögum: að
deiliskipulagi Fólkvangsins í Vífilstaðahrauni, að friðlýsingu
Urriðakotshrauns sem fólkvangs í samstarfi við Umhverfisstofnun, að
deiliskipulagi fyrirhugaðs fólkvangs og golfvallar í
Urriðavatnsdölum. Einnig að laga stígakerfið að þeim breytingum sem
hafa orðið vegna uppbyggingar í Garðabæ austan Reykjanesbrautar.
Tillagan gerir m.a. ráð fyrir því að reiðstígur meðfram Flóttamannavegi og
Elliðavatnsvegi leggist af en nýr reiðstígur komi úr Grunnavatnsskarði um
Ljóskollulág og niður Vífilsstaðahlíð sem tengist reiðstíg í
Urriðakotshrauni.
Gert er ráð
fyrir breyttri legu Flóttamannavegar frá Urriðaholti að Vífilsstöðum og verður
hann skilgreindur sem tengibraut á þessum kafla.
Tillaga að deiliskipulagi fyrir útivistarsvæði
í Urriðavatnsdölum (Golfvöllur og fólkvangur).
Tillagan gerir ráð fyrir kerfi útivistarstíga og
reiðstíga innan fólkvangs í Urriðakotshrauni og á golfvallarsvæði í
Urriðavatnsdölum.
Gert er ráð fyrir stækkun golfvallarins
Urriðavallar og nýjum útivistarstíg. Hluti golfvallar verður innan fyrirhugaðs
fólkvangs í Urriðakotshrauni.
Markmið deiliskipulagsins er að í
Urriðavatnsdölum og í Urriðakotshrauni verði aðlaðandi útivistarsvæði og
að á Urriðavelli verði aðstaða til golfiðkunar í hæsta gæðaflokki.
Samhliða auglýsir Umhverfisstofnun tillögu að
friðlýsingu Urriðakotshrauns sem fólkvangur og hefur leiðarljós í
deiliskipulagsvinnunni verið að stuðla að vernd hraunsins og náttúrlegs
gróðurfars á svæðinu og skapa góðar aðstæður til útivistar gangandi,
hjólandi og ríðandi vegfarenda með vönduðum stígum í góðum tengslum við
stígakerfi í upplandi Garðabæjar.
Tillaga að deiliskipulagi fólkvangs í Vífilsstaðahrauni.
Tillagan gerir ráð fyrir stíga-og umferðarkerfi
fyrir innan fólkvangsins í Vífilsstaðahrauni og Maríuhellum.
Markmið deiliskipulagsins er að skipuleggja
svæði til útivistar, náttúruskoðunar og fræðslu samhliða því
að vernda jarðmyndanir, gróðurfar, fuglalíf og menningarminjar. Skilgreint
er fyrirkomulag göngu- og hjólastíga, fræðslu- og áningarstaða.
Veglína Flóttamannavegar, sem liggur milli
fólkvanganna í Vífilsstaðahrauni og Maríuhellum er endurskoðuð til að bæta
öryggi á veginum og til samræmis við breytta skilgreiningu hans í aðalskipulagi
sem auglýst er samhliða. Stígur milli Urriðaholts og Vífilsstaða meðfram
Reykjanesbraut er skilgreindur sem stofnstígur ætlaður umferð gangandi og
hjólandi vegfarenda.
Tillaga að breytingu deiliskipulags Heiðmerkur og
Sandahlíðar.
Tillagan gerir ráð fyrir nýjum reiðstíg frá
Grunnavatnsskarði um Ljóskollulág og niður Vífilsstaðahlíð að reiðstíg í
Urriðakotshrauni. Mörk deiliskipulagsins að vestanverðu breytast og eru samræmd
mörkum að tillögu deiliskipulags útivistarsvæðis í Urriðavatnsdölum og tillögu
að mörkum friðlýsingar sem er auglýst samhliða. Mörk deiliskipulagsins eru
einnig samræmd mörkum að friðlandi Búrfells og Búrfellsgjár.
Gert er ráð fyrir aðstöðu fyrir Skógræktarfélag
Garðabæjar við Sandahlíð m.a. með byggingarreit fyrir skála, bílastæðum og
aðstöðu fyrir aðra starfsemi félagsins.
Tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts austurhluta.
Tillagan gerir ráð fyrir því að reiðstígur
meðfram Flóttamannavegi leggist af.
Ofangreindar tillögur eru auglýstar
samhliða auglýsingu Umhverfisstofnunar á tillögu að friðlýsingu
Urriðakotshrauns sem fólkvangur sbr. 52. gr. og 38. gr. náttúruverndarlaga nr. 60/2013.
Frestur til að skila inn athugasemdum við tillögurnar er samræmdur við
athugasemdafrest vegna tillögu að friðlýsingu og er hann því 3 mánuðir frá
birtingu þessarar auglýsingar.
Tillaga að friðlýsingu Urriðakotshrauns er
aðgengileg á heimasíðu Umhverfisstofnunar www.ust.is/nattura/fridlysingar.
Tillögurnar
eru aðgengilegar á vef Garðabæjar, www.gardabaer.is og í
þjónustuveri. Þeir sem telja sig eiga hagsmuni að gæta er gefinn kostur á
að senda inn skriflegar athugasemdir til og með 11. maí 2023, annað hvort á
netfangið skipulag@gardabaer.is eða á
bæjarskrifstofur Garðabæjar, Garðatorgi 7, 210 Garðabæ.