Skipulag í kynningu

Hér má nálgast þau skipulagsmál sem eru í kynningu hjá Garðabæ. Hagsmunaaðilar eru hvattir til að kynna sér málin.

Athugasemdum eða ábendingum við kynntar tillögur skal skila skriflega til tækni- og umhverfissviðs Garðabæjar, Garðatorgi 7, eða með tölvupósti á skipulag@gardabaer.is fyrir lok þess dags sem gefinn er upp hverju sinni.


Uppland Garðabæjar, Urriðavatnsdalir, Urriðakotshraun, Heiðmörk og Vífilsstaðahraun

9.2.2023

Tillögur að skipulagsáætlunum og breytingum á eldri áætlunum á aðalskipulags- og deiliskipulagsstigi.

Tillögur að skipulagsáætlunum og breytingum á eldri áætlunum á aðalskipulags- og deiliskipulagsstigi.

Á fundi bæjarstjórnar Garðabæjar þann 4. desember 2022 var samþykkt að vísa til auglýsingar samkvæmt 31. gr. og 41. gr. og 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eftirfarandi tillögum:


Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 vegna stígakerfis í upplandi Garðabæjar og vegna Flóttamannavegar.

Aðalskipulagsbreytingin felst í endurskoðun á reiðleiðum og stígum í upplandi Garðabæjar og skilgreiningu Flóttamannavegar frá Urriðaholti að Vífilsstöðum til samræmis við deiliskipulagstillögur og friðlýsingartillögu sem auglýstar eru samhliða.

Markmið tillögunnar er að laga stígakerfið að eftirfarandi tillögum: að deiliskipulagi Fólkvangsins í Vífilstaðahrauni, að friðlýsingu Urriðakotshrauns sem fólkvangs í samstarfi við Umhverfisstofnun, að deiliskipulagi fyrirhugaðs fólkvangs og golfvallar í Urriðavatnsdölum. Einnig að laga stígakerfið að þeim breytingum sem hafa orðið vegna uppbyggingar í Garðabæ austan Reykjanesbrautar.
Tillagan gerir m.a. ráð fyrir því að reiðstígur meðfram Flóttamannavegi og Elliðavatnsvegi leggist af en nýr reiðstígur komi úr Grunnavatnsskarði um Ljóskollulág og niður Vífilsstaðahlíð sem tengist reiðstíg í Urriðakotshrauni.

Gert er ráð fyrir breyttri legu Flóttamannavegar frá Urriðaholti að Vífilsstöðum og verður hann skilgreindur sem tengibraut á þessum kafla.


Tillaga að deiliskipulagi fyrir útivistarsvæði í Urriðavatnsdölum (Golfvöllur og fólkvangur).

Tillagan gerir ráð fyrir kerfi útivistarstíga og reiðstíga innan fólkvangs í Urriðakotshrauni og á golfvallarsvæði í Urriðavatnsdölum.

Gert er ráð fyrir stækkun golfvallarins Urriðavallar og nýjum útivistarstíg. Hluti golfvallar verður innan fyrirhugaðs fólkvangs í Urriðakotshrauni.

Markmið deiliskipulagsins er að í Urriðavatnsdölum og í Urriðakotshrauni verði aðlaðandi útivistarsvæði og að á Urriðavelli verði aðstaða til golfiðkunar í hæsta gæðaflokki.

Samhliða auglýsir Umhverfisstofnun tillögu að friðlýsingu Urriðakotshrauns sem fólkvangur og hefur leiðarljós í deiliskipulagsvinnunni verið að stuðla að vernd hraunsins og náttúrlegs gróðurfars á svæðinu og skapa góðar aðstæður til útivistar gangandi, hjólandi og ríðandi vegfarenda með vönduðum stígum í góðum tengslum við stígakerfi í upplandi Garðabæjar.


Tillaga að deiliskipulagi fólkvangs í Vífilsstaðahrauni.

Tillagan gerir ráð fyrir stíga-og umferðarkerfi fyrir innan fólkvangsins í Vífilsstaðahrauni og Maríuhellum.

Markmið deiliskipulagsins er að skipuleggja svæði til útivistar, náttúruskoðunar og fræðslu samhliða því að vernda jarðmyndanir, gróðurfar, fuglalíf og menningarminjar. Skilgreint er fyrirkomulag göngu- og hjólastíga, fræðslu- og áningarstaða.

Veglína Flóttamannavegar, sem liggur milli fólkvanganna í Vífilsstaðahrauni og Maríuhellum er endurskoðuð til að bæta öryggi á veginum og til samræmis við breytta skilgreiningu hans í aðalskipulagi sem auglýst er samhliða. Stígur milli Urriðaholts og Vífilsstaða meðfram Reykjanesbraut er skilgreindur sem stofnstígur ætlaður umferð gangandi og hjólandi vegfarenda.


Tillaga að breytingu deiliskipulags Heiðmerkur og Sandahlíðar.

Tillagan gerir ráð fyrir nýjum reiðstíg frá Grunnavatnsskarði um Ljóskollulág og niður Vífilsstaðahlíð að reiðstíg í Urriðakotshrauni. Mörk deiliskipulagsins að vestanverðu breytast og eru samræmd mörkum að tillögu deiliskipulags útivistarsvæðis í Urriðavatnsdölum og tillögu að mörkum friðlýsingar sem er auglýst samhliða. Mörk deiliskipulagsins eru einnig samræmd mörkum að friðlandi Búrfells og Búrfellsgjár.

Gert er ráð fyrir aðstöðu fyrir Skógræktarfélag Garðabæjar við Sandahlíð m.a. með byggingarreit fyrir skála, bílastæðum og aðstöðu fyrir aðra starfsemi félagsins.


Tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts austurhluta.

Tillagan gerir ráð fyrir því að reiðstígur meðfram Flóttamannavegi leggist af.


Ofangreindar tillögur eru auglýstar samhliða auglýsingu Umhverfisstofnunar á tillögu að friðlýsingu Urriðakotshrauns sem fólkvangur sbr. 52. gr. og 38. gr. náttúruverndarlaga nr. 60/2013. Frestur til að skila inn athugasemdum við tillögurnar er samræmdur við athugasemdafrest vegna tillögu að friðlýsingu og er hann því 3 mánuðir frá birtingu þessarar auglýsingar.

Tillaga að friðlýsingu Urriðakotshrauns er aðgengileg á heimasíðu Umhverfisstofnunar www.ust.is/nattura/fridlysingar.

Tillögurnar eru aðgengilegar á vef Garðabæjar, www.gardabaer.is og í þjónustuveri. Þeir sem telja sig eiga hagsmuni að gæta er gefinn kostur á að senda inn skriflegar athugasemdir til og með 11. maí 2023, annað hvort á netfangið skipulag@gardabaer.is eða á bæjarskrifstofur Garðabæjar, Garðatorgi 7, 210 Garðabæ.