Ert þú með hugmyndir að erindum og fyrirkomulagi á Iceland Travel Tech 2023?
Iceland Travel Tech fer nú fram í fimmta skipti en það eru Íslenski ferðaklasinn og Ferðamálatofa sem eru framkvæmdaaðilar og skipuleggjendur að viðburðinum.
Í ár stendur til að blanda saman öflugum erindum og sýningu frá ferðatækniaðilum sem gefur ferðaþjónustufyrirtækjum tækifæri á að sækja sér innblástur og komast í beint samband við þá aðila sem eru að þróa og hann nýjar vörur og þjónustu.
Hér að neðan bjóðum við þér að koma með hugmyndir að skipulagi viðburðarins með það fyrir augum að hámarka virði fyrir þátttakendur og sýnendur.